Sport

Williams og Toyota dæmd úr leik

Keppnisbílar BMW Williams og Toyota, sem luku keppni í stigasætum í kanadíska kappakstrinum um síðustu helgi, voru dæmdir úr leik fimm tímum eftir að keppninni lauk. Liðin nýttu sér ekki áfrýjunarrétt sinn og því var niðurstaða dómnefndar staðfest. Í tilkynningu sem Alþjóðaaksturssambandið, FIA, sendi frá segir meðal annars: "Skoðunarmenn hafa fengið þær upplýsingar frá tæknistjóra mótsins að loftinntök til kælingar bremsukerfa á bílum Juan Pablo Montoya og Ralf Schumacher hafi ekki verið af leyfilegri stærð. Þá hafa skoðunarmenn fengið skýringar á málinu frá Sam Michael, tæknistjóra BMW Williams, og hann meðtekur álit skoðunarmanna. Ákvörðun þeirra er að dæma stigin af ökumönnum liðsins." Ralf Schumacher var afar ósáttur við BMW Williams-liðið eftir dóm skoðunarmanna í Montreal og svo fór að sjálfur Frank Williams hringdi persónulega í hann og baðst afsökunar á atvikinu en Ralf segir það litlu breyta: "Frank hringdi í mig og baðst afsökunar en það er lítil huggun í því. Brot á reglum er brot á reglum og mér er refsað fyrir það. Við verðum að sætta okkur við þetta en það er langt í frá auðvelt. Þetta eru mikil vonbrigði því það var mikil jákvæðni innan liðsins sem skilaði sér í góðum árangri," sagði Ralf Schumacher hundfúll og bætti við: "Það þýðir þó lítið að kvarta og ég stefni ótrauður á toppinn. Það er vika í næsta mót og vonandi tekst mér vel upp." Juan Pablo Montoya tók dóminum ekki eins illa og Ralf: "Því miður gerðu tæknimenn okkar mistök og slíkt getur alltaf gerst." Eftir keppnina er Michael Schumacher efstur með 70 sig og 16 stiga forskot á félaga sinn hjá Ferrari, Rubens Barichello, sem kemur næstur. Jenson Button hjá BAR-Honda er í þriðja sæti með 44 stig og Jarno Trulli, Renault, í því fjórða með 36.                Í keppni bílasmiða er Ferrari langefst með 124 stig, Renault er með 61 og BAR-Honda 52.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×