Innlent

Vítisenglar stöðvaðir í Leifsstöð?

Átta menn sem taldir eru tengjast vélhjólasamtökunum Vítisenglum voru stöðvaðir í Leifsstöð nú síðdegis. Mennirnir komu með flugi frá Kaupmannahöfn og er jafnvel von á fleiri meintum meðlimum samtakanna til landsins. RÚV greindi frá þessu. Að sögn Jóhanns R. Benediktsson, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, kom ekki til átaka þegar mennirnir voru stöðvaðir. Málið er í athugun og því liggur ekki fyrir hvort mönnunum verði vísað frá landi.    



Fleiri fréttir

Sjá meira


×