Menning

Harmleikurinn í Hamraborg

"Í raun vitum við ekki hvað gerðist," segir Páll faðir Sæunnar í viðtali í helgarblaði DV og bætir við: "Ekki frekar en aðrir býst ég við. Í dag veit maður samt að hjónaband þeirra var siglt í strand. Þau höfðu farið í hjónabandsráðgjöf en Sæunn vildi bara skilnað." Þau segja að dóttir þeirra hafi ætlað til sýslumanns á mánudeginum til að ganga frá formsatriðum. Sú ferð hafi aldrei verið farin. "Sæunn talaði ekki við okkur um þessi mál. Við vissum ekki hve alvarlegt ástandið var orðið í hjónabandinu hjá dóttur okkar. " segir Sólveig. "Auðvitað sá maður stundum að eitthvað var að en maður hélt, eða vonaði, að það myndi bara lagast." Eftir smá þögn bætir Páll við: "Manni grunaði ekki hvað drengurinn var afbrýðisamur." Ítarlegt viðtal við foreldra Sæunnar er í helgarblaði DV sem fæst á næsta blaðsölustað.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.