Menning

Öðruvísi sjúkratryggingavottorð

Mörg ríki innan Evrópusambandsins hófu útgáfu á nýjum, evrópskum sjúkratryggingakortum í byrjun síðasta mánaðar. Þessi kort koma í staðinn fyrir sjúkratryggingavottorðin E-111 og E-128. Hætt verður um leið að gefa þessi vottorð út í pappírsformi. Öll ríki á Evrópska efnahagssvæðinu verða komin með svona kort, ekki seinna en frá janúar 2006. Í þessari breytingu felst að ríkisborgarar Evrópska efnahagssvæðisins eiga rétt á heilbrigðisþjónustu gegn sama gjaldi og þeir sem tryggðir eru hér á landi þegar um er að ræða aðstoð sem telst nauðsynleg af læknisfræðilegum ástæðum meðan á dvöl stendur. Þá er mið tekið af eðli aðstoðarinnar og áætlaðri tímalengd dvalarinnar. Ríki sem gefa ekki út evrópskt sjúkratryggingakort að svo stöddu gefa út nýtt og einfaldara E-111 vottorð en eldri gerð þeirra er fallin úr gildi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.