Tíska og hönnun

Hársýning Sebastians

Annað þemað í línunni er töffarinn James Bond. Heiti línunnar, License to Thrill, er vísun í Bond-kvikmyndina License to Kill. Línurnar í klippingum í haust eru mjúkar og þverar en sérstaða þeirra er að hver hárgreiðslumeistari getur formað klippinguna að andlitslagi hvers og eins og þannig gert klippinguna persónulegri. Samkvæmt Sebastian verða litirnir í ár frekar massífir, heilir og djúpir. Safarígrænn og fjólublár eru aðallitir í Trucco-förðunarlínu Sebastians sem heitir Seven.

Sýning þessi var lokahnykkur á tvöföldu afmæli sem heildsalan Halldór Jónsson ehf. stóð fyrir. Í fyrra var haldið upp á þrjátíu ára afmæli Sebastians um allan heim og í ár upp á tuttugu ára afmæli Sebastians hér á landi.

Aðalþema í haustlínu hárvöruframleiðandans Sebastians er sjötta skilningarvitið. Innblástur hennar er myndir ljósmyndarans Helmut Newton en sérstaða hans var að hann nýtti sér sjötta skilningarvitið til að gera sínar ljósmyndir öðruvísi en aðrar. Hárlínan var kynnt í Borgarleikhúsinu í septemberlok og sáu Diane Barbera og Marcy Landgraf frá Sebastian um hárgreiðslurnar.

Hér sjást fyrirsæturnar tilbúnar eftir hárgreiðslu hjá fagmönnum Sebastian.
Hérna sýna fyrirsætur Trucco-förðunarlínuna sem byggist á framtíðarsýn. Á þessari mynd eru þær að ímynda sér hvernig er að kyssa einhvern sem er kannski ekki til.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.