Sport

Loks sigur hjá liði Keith Vassell

Íslandsvinurinn Keith Vassel og félagar hans í sænska körfuknattleiksliðinu Jamtland Basket sigruðu Norrköping Dolphins í tvíframlengdum leik, 117-109, í fyrrakvöld. Jamtland hafði gengið illa fram til þessa og tapað 10 leikjum í röð í sænsku úrvalsdeildinni. Norrköping hafði forystuna lengst af en vítanýting Keiths á lokamínútum hélt Jamtland á floti og tryggði þeim framlengingu. Keith átti ágætis leik, skoraði 15 stig tók 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Í þeim fjórum leikjum sem hann hefur leikið hefur hann gert 14,8 stig að meðaltali og tekið 6 fráköst. Jamtland vermir enn botnsæti sænsku deildarinnar og þarf því að rífa sig upp af afturendanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×