Sport

Engin slagsmál að þessu sinni

Indiana Pacers tók á móti Detroit Pistons í NBA-körfuboltanum í kvöld en þegar þessi lið mættust á heimavelli Pistons sauð allrækilega upp úr undir lok leiksins sem endaði með allsherjarslagsmálum milli áhorfenda og leikmanna Pacers. David Stern, framkvæmdastjóri NBA, ákvað í kjölfarið að dæma þrjá leikmenn Pacers í bann og vonir liðsins því ekki miklar fyrir komandi átök á tímabilinu. Einn þeirra sem dæmdur var í bann, Jermaine O´Neal, lék með Pacers í kvöld en það breytti ekki miklu þar sem að Pistons vann, 98-93. Richard Hamilton var stigahæstur hjá Pistons, skoraði 25 stig og gaf að auki 5 stoðsendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×