Innlent

Fjórir þjófar handteknir

Reykjavíkurlögreglan handtók fjóra menn á bíl í nótt eftir að tilkynnt var að þeir hefðu brotist inn í fjölbýlishús og látið greipar sópa í geymslum hússins. Lögreglumenn stöðvuðu mennina skammt frá húsinu og reyndist ýmiskonar varningur vera í bílnum sem menn eru ekki vanir að fara með í bíltúr um miðja nótt. Mennirnir gista nú fangageymslur og eru grunaðir um að hafa sitthvað fleira á samviskunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×