Viðskipti innlent

Lífeyrissjóður lækkar vexti

Stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna hefur ákveðið að lækka vexti af lánum til sjóðfélaga í 4,3% úr 4,83% að því er fram kemur á heimasíðu Landsamtaka lífeyrissjóða. Vaxtabreytingin tekur bæði til nýrri sem eldri lána. Í tilkynningunni segir að ákvörðun þessi sé tekin í kjölfar lækkunar á langtímalánum bankanna.  Stjórn Framsýnar hefur jafnframt tekið þá ákvörðun að lækka vexti af sjóðfélagalánum frá og með 1. september úr 5,4% í 4,9%. Í tilkynningu segir að vextir á sjóðfélagalánum séu endurskoðaðir reglulega með tilliti til markaðaðstæðna. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×