Erlent

Hersetuliðið í 5 ár til viðbótar

Engin leið er að kalla hersetuliðið í Írak heim innan fimm ára að mati virtustu sérfræðinga Bretlands í hermálum. Fyrst þá er nokkur von til þess að írakskar öryggissveitir geti tryggt lágmarksöryggi borgara landsins. International Institute for Strategic Studies er með virtustu rannsóknarstofnunum heims á sviði her- og varnarmála. Sérfræðingar stofnunarinnar kynntu í dag mat sitt á stöðu mála í Írak og sögðu að í fyrsta lagi væri nauðsynlegt að öryggissveitir Íraka verði helsta tækið til að halda uppi lögum og reglu. Í þeim séu nú 36 þúsund manns og það geti tekið þær allt að fimm árum að ná upp nauðsynlegri hæfni til að tryggja stöðugleika. Christopher Langton, ofursti og ritstjóri „The Military Balance“, sagði að augljóslega væru ekki nógu margar hersveitir í Írak til að sinna verkefninu. Menn hafi vonað að fjöldi innlendra sveita myndi aukast hraðar og þær yrðu fyrr hæfar en raunin hafi orðið. Þar af leiðandi hafa erlendar hersveitir, sagði Langton, orðið að gera meira en búist var við. Sérfræðingarnir veltu einnig fyrir sér hryðjuverkastríðinu svokallaða og afleiðingum þess. Þeir eru á því að Evrópa sé nú einna líklegasta skotmark hryðjuverkamanna. Dr John Chipman, yfirmaður International Institute for Strategic Studies, sagði að þótt möguleg vanræksla á öryggismálum sé orðin að kosningamáli í Bandaríkjunum væri bandarískt landsvæði síður berskjaldað eftir 11. september. „Árásir á bandarískar hersveitir í Írak hafa ekki jafn mikinn táknrænan og pólitískan þunga og hryðjuverkaárásir á Vesturlöndum,“ sagði Chipman. „Þess vegna getur verið að Evrópa, þar sem róttækni íslamstrúarmanna fer vaxandi og þar sem hryðjuverkamenn eiga greiða leið frá Miðausturlöndum, sé nú ofar á skotmarkalista íslamskra öfgamanna.“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×