Erlent

34 börn hafa látist í dag

Af þeim rúmlega fjörutíu sem látist hafa í sprengingum í Írak í dag eru þrjátíu og fjögur börn. Flest þeirra voru í námunda við bandaríska hermenn til að fá hjá þeim sælgæti. 139 særðust í tilræðunum, meirihlutinn börn.  Sprengjutilræðin í morgun voru greinilega skipulögð með það í huga að valda sem mestu tjóni. Fyrsta sprengjan var sjálfsmorðsárás sem gerð var skammt frá bílalest bandarískra hermanna í suðurhluta Bagdad. Seinni tvær sprengjurnar sprungu á sama stað, einmitt þegar almenning og hermenn dreif að til að reyna að aðstoða þá sem særðust og létust í fyrstu sprengingunni. Fréttaskýrendur segja að ástandið í Írak fari versnandi dag frá degi og vilja meina að öfgahópar séu að gíra sig upp fyrir fyrirhugaðar kosningar í landinu snemma á næsta ári. Fyrir aðeins mánuði síðan voru að meðaltali gerðar um fjörutíu árásir á dag á bandaríska hermenn en nú eru þær að meðaltali um áttatíu á dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×