Innlent

Sjö handteknir í Reykjavík

Sjö manns voru handteknir grunaðir um fíkniefnaneyslu í húsi í austurhluta borgarinnar um tíu-leytið á föstudagskvöldið. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var lagt hald á fíkniefni í húsinu og einnig muni sem lögreglan telur vera þýfi. Sjömenningarnir fengu að gista fangageymslu lögreglunnar á föstudagsnóttina en voru yfirheyrðir í gær. Lögreglan mun vera að rannsaka málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×