Tíska og hönnun

Sérverslun með stíl

Lakkrísbúðin á Laugavegi er skemmtileg sérverslun sem opnaði í vor. Lakkrísbúðin selur hátísku fatnað eftir erlenda unga framsækna hönnuði og byrjaði nýverið að bjóða einnig upp á íslenska hönnun. Það eru systkinin Þuríður Rún Sigurþórsdóttir og Þór Sigurþórsson ásamt Andreu Maack Pétursdóttur sem eiga og reka Lakkrísbúðina. Þuríður og Þór eru bæði menntuð úr textíl og fatabransanum. Þuríður útskrifaðist frá Central Saint Martins hönnunarskólanum í London fyrir nokkrum árum og Þór kláraði textíl og fatahönnun frá Listháskóla Íslands árið 2002. Andrea er myndlistarnemi við Listháskólann.

Þríeykinu fannst vöntun á ferskri hönnun hér á landi og leituðu út fyrir landsteinana og fundu unga spennandi hönnuði sem hafa gert garðinn frægan ytra og eru komnir það langt að flíkurnar þeirra birtast reglulega í helstu tískublöðum heims.

Nú þegar fást í Lakkrísbúðinni meðal annars vörur frá Emmu Chook, Peter Jensen og skartgripir frá Yazbukey og von er á fleiri spennandi merkjum.

Með stofnun búðarinnar vildu eigendurnir líka skapa vettvang fyrir unga íslenska hönnuði að koma flíkum sínum á framfæri, núna eru Kristín Gunnarsdóttir og Iðunn Andersen með vörur í Lakkrísbúðinni og íslenska hönnunin á eflaust eftir að aukast í nánustu framtíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.