Innlent

Þrír slasaðir eftir árekstur

Laust eftir klukkan sex í gærdag var fólksbifreið ekið aftan á flutningabifreið við hraðahindrun sem nýbúið er að setja upp á Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Þrír voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir slysið, ökumaður og farþegi fólksbílsins, auk ökumanns flutningabifreiðarinnar. Nokkur viðbúnaður var vegna slyssins, en á vettvang fór bæði lögregla og sjúkrabifreiðar frá Brunavörnum Suðurnesja. Ekki lágu fyrir nákvæmar upplýsingar um meiðsli fólksins hjá lögreglu í Keflavík, en þau voru þó talin allnokkur. Fólksbíllinn var fluttur af vettvangi með dráttarbifreið, mikið skemmdur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×