Innlent

Bauð mér ekki í mat

"Ég hef kafað djúpt í huga minn en man ekki eftir að Jónína Benediktsdóttir hafi sýnt mér nein gögn um þetta mál," segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar. "Það er því algjörlega af og frá að ég hafi haft sömu upplýsingar og Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins. Jónína virðist hnýta mér í einhvern þann hóp sem hefur fengið að sitja við skör hennar. Því miður bauð hún mér aldrei í mat," bætir Össur við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×