Breytingar ekki útilokaðar 24. apríl 2005 00:01 "
Þetta hefur ekki verið kynnt með neinum hætti í þingflokknum og ég fæ ekki séð að þetta skipti miklu máli," segir Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vegna ágreinings þeirra Davíðs Oddsonar, utanríkisráðherra og Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, um breytingar á eftirlaunafrumvarpi ráðherra og þingmanna. Sjálfstæðismenn hafa löngum verið eini flokkurinn sem sýnt hefur frekari breytingum andstöðu en aðeins eru tvo ár síðan breytingar voru síðast gerðar á frumvarpinu. Vill Halldór Ásgrímsson láta breyta eða taka út ákvæði sem gefur fyrrverandi ráðherrum og þingmönnum fullar eftirlaunagreiðslur þrátt fyrir að viðkomandi sinni enn öðrum fullum störfum innan ríkisgeirans. Þeir aðilar eru þannig í raun á tvöföldum launum. Pétur Blöndal, sjálfstæðismaður, segist ekki vita til þess að núningur sé vegna þessa máls milli stjórnarflokkanna telur sjálfsagt og eðlilegt að ræða þessi mál sem önnur og útilokar ekki að breytingar verði gerðar í framtíðinni. "'Ég veit ekki til þess að það sé nokkur núningur vegna þessa máls milli stjórnarflokkanna. Það má þó ekki gleyma að allar breytingar sem gerðar eru hafa áhrif á tugþúsundir starfsmanna ríkisins. Það hefur verið venjan hingað til að menn sem eru komnir á eftirlaun mega vinna ef þeim sýnist svo öfugt við til dæmis örorkulífeyri sem er hugsaður sem trygging fyrir tekjumissi. Þetta er einn angi af miklu stærra máli en ég er reiðubúinn að skoða allar hugmyndir um breytingar." Annar sjálfstæðismaður, Einar K. Guðfinnsson, segist einnig reiðubúinn að skoða allar breytingar varðandi eftirlaunafrumvarpið en þær hugmyndir verði þá að vera heilsteyptar. "Ég hef sjálfur engar stórar meiningar varðandi frumvarpið eins og það er í dag en það var alltaf talað um að sjálfssagt væri að skoða þetta þegar fram liðu stundir og ég er reiðubúinn til þess. Ég ítreka hins vegar að þetta hefur ekki komið upp eða verið rætt sérstaklega innan þingflokksins."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Innlent Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Innlent Ógeðslega stoltur af kennurum Innlent Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Leggjast aftur yfir myndefnið Innlent Fleiri fréttir Jakob Reynir Aftur reyndi aftur og fær að reyna aftur Ráðist í skipulagsbreytingar og þremur sagt upp Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Kátt á hjalla í Karphúsinu í gærkvöldi Leggjast aftur yfir myndefnið Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Vilja hvalkjöt af matseðlinum Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Handtökur vegna nágrannaerja og slagsmála í miðbænum Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Ógeðslega stoltur af kennurum Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Kjarasamningur kennara í höfn Engin röð á Læknavaktinni Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Bylgjan og FM957 liggja niðri Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Vilja styrkja viðgerðir á sögufrægum byggingum Kjarnorkukafbátur í Eyjafirði Konur á miðjum aldri þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna Verði gott fyrir lögreglu að vita hvar mörkin liggja Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Sjá meira