Lífið

Þetta líf tilnefnt

Þorsteinn J. Vefur Þorsteins var tilnefndur en hlaut ekki verðlaun.
Þorsteinn J. Vefur Þorsteins var tilnefndur en hlaut ekki verðlaun.

Verðlaun Sjónvarpstímaritið Þetta líf, þetta líf var tilnefnt í flokki netmiðla á fjölmiðlaráðstefnunni og hátíðinni Prix Europa. Verðlaunin féllu á laugardag í skaut hollenska tónleikavefsins Fabchannel. Sá vefur hefur eins og Þetta líf, þetta líf verið að sjónvarpsvæða netið.

Ritstjóri tímaritsins er Þorsteinn J. Vilhjálmsson og segir að þetta hafi verið mjög lærdómsríkt og að síðan thorsteinnj.is, sem hýsir tímaritið, hafi fengið mikla og góða athygli. Segir Þorsteinn hafa fengið mikla hvatningu til þess að bæta tímaritið enn frekar og stefnir hann að því á næstu misserum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×