Sport

Sektað um 700 þúsund á árinu

Knattspyrnusamband Íslands hefur alls verið sektað um ríflega 700 þúsund krónur á tímabilinu vegna áminninga sem leikmenn íslenska landsliðsins hafa hlotið í undankeppni HM.

Í gær bættust við 230 þúsund krónur vegna fjögurra áminninga sem  leikmenn liðsins hlutu í lokaleik Íslands gegn Svíum í undankeppninni í síðasta mánuði. Áður hafði KSÍ fengið um 470 þúsund króna sekt vegna áminninga í leikjunum gegn Króötum á Laugardalsvellinum og Búlgörum ytra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×