Innlent

Næstir á eftir finnska ríkinu

Eignarhlutur Straums - Burðaráss í finnska flugfélaginu Finnair er kominn upp í tæp ellefu prósent. Straumur, sem er næststærsti hluthafinn í flugfélaginu á eftir finnska ríkinu, hefur verið að bæta við sig hlutum jafnt og þétt á árinu.

Finnska ríkið ræður meirihlutanum í félaginu. Gengi hlutabréfa í finnska flugfélaginu hefur hækkað um sjötíu prósent frá því í maí sem rekja má til góðrar afkomu félagsins auk áhuga Straums - Burðaráss. Hlutabréf í Finnair hækkuðu um fjögur prósent í finnsku kauphöllinni í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×