Innlent

Sluppu ómeidd úr eldsvoða

Eldur kom upp í húsi við Hvanneyrarbraut á Siglufirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Eldurinn kviknaði í kjallara en barst fljótlega upp á hæðina fyrir ofan. Tvennt var í húsinu og bæði komust ómeidd út af sjálfsdáðum. Húsið er mikið skemmt bæði af völdum elds og reyks. Lögreglan á Siglufirði bíður nú eftir liðsauka frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík svo rannsaka megi eldsupptök.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×