Viðskipti innlent

Horfur í heimsbúskapnum góðar samkvæmt OECD

MYND/Valgarður

Horfur í heimsbúskapnum eru almennt góðar samkvæmt skýrslu OECD um alþjóðlega þróun efnahagsmála sem fjallað er um á vef fjármálaráðuneytisins. Þrátt fyrir umtalsverða hækkun olíuverðs á þessu ári hefur hagvöxtur í heiminum haldist stöðugur og gert er ráð fyrir að svo verði áfram á næsta ári.

Hagvöxtur hefur verið mikill í Bandaríkjunum og enn meiri í mörgum löndum Asíu og hinum nýju aðildarríkjum ESB. Eftir nokkurt skeið stöðnunar er hagvöxtur í Japan og Vestur-Evróp u að glæðast, m.a. vegna lágra langtímavaxta og kröftugs vaxtar útflutningsmarkaða en heimsviðskiptin aukast um 10 prósent í ár. Á evrusvæðinu hefur lækkun á gengi evrunnar jafnframt haft jákvæð áhrif á útflutnings- og hagvöxt.

Þá segir á vef fjármálaráðuneytisins að í mörgum OECD-löndum hafilágir langtímavextir haft áhrif til að auka fjárfestingu, sérstaklega í íbúðarhúsnæði. Í kjölfarið hafifasteignaverð hækkað. Vegna aukinna tengsla innlendra lánastofnana við hinn alþjóðlega fjármagnsmarkað hafiÍsland ekki farið varhluta af þeirri þróun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×