Sport

Karl Malone í viðræðum við Spurs

Karl Malone, fyrrum leikmaður Utah Jazz og LA Lakers í NBA deildinni í körfuknattleik, á um þessar mundir í viðræðum við lið San Antonio Spurs um að gera samning við félagið. Fleiri lið hafa verið á höttunum eftir kappanum, en hann hefur verið samningslaus í vetur eftir að hann fór frá liði Lakers í fússi eftir að honum sinnaðist við vandræðagemlinginn Kobe Bryant. Malone er rúmlega fertugur og ku vera í fínu formi enn, þrátt fyrir aldurinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×