Innlent

Starfsmenn Járnblendisins semja

Samninganefndir starfsmanna og eigenda Íslenska járnblendifélagins á Grundartanga undirrituðu kjarasamning í húsi ríkissáttasemjara í gær. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness sem um 90 prósent starfsmanna eru félagsmenn í, segir að ekki hafi verið komist lengra að þessu sinni. Hæst beri að samið hafi verið um rétt rúmlega 20 prósenta hækkun launa á fjögra ára samningstíma og nýtt bónuskerfi. Starfsmenn hafa tíma til 17. febrúar til að kjósa um samninginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×