Innlent

Sýknað af bótakröfu

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Flugleiðir í dag af átta og hálfrar milljóna króna skaðabótakröfu fyrrverandi starfsmanns fyrirtækisins, sem slasaðist við vinnu á Keflavíkurflugvelli 1. desember 1999. Starfsmaðurinn, sem var þá átján ára, féll fjóra metra úr stiga þar sem hann vann að hreinsun Boeing 747 þotu Atlanta flugfélagsins. Dómkvaddir matsmenn mátu varanlega örorku piltsins til tuttugu prósenta. Vinnueftirlitið mat aðstæður á vinnustað þannig að þær hefðu ekki skapað hættu og komst dómari að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið bæri því ekki ábyrgð á slysinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×