Innlent

26 umferðaróhöpp í Reykjavík í gær

26 umferðaróhöpp urðu í Reykjavík í gær þrátt fyrir að akstursskilyrði væru hin ákjósanlegustu. Þetta er langt umfram allt meðaltal og kann lögregla enga sérstaka skýringu á þessari óhappahrynu. Enginn meiddist alvarlega en eignatjón hleypur á milljónum króna. Þá stöðvaði lögreglan í Reykjavík ökumann á Sæbraut í nótt á 132 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60. Hann var því á ríflega tvöföldum hámarkshraða og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×