Viðskipti innlent

Baugur fjárfestir í Bretlandi

Breska dagblaðið Sunday Telegraph greindi í gær frá því að Baugur ásamt skoska frumkvöðlinum Tom Hunter og breska stórbankanum HBOS hefðu stofnað með sér fasteignafélag. Félagið, sem hefur um fimm hundruð milljónir punda í hlutafé, er ætlað að eignast breskar matvöruverslanir og húsnæði í verslunarmiðstöðvum. Baugur mun eignast um tíu prósent í fasteignafélaginu en hinir tveir aðilirnir rúmlega fjörutíu prósent.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×