Innlent

Þrír gistu fangaklefa

Lögregla að störfum.
Lögregla að störfum.

Þrír gistu fangaklefa lögreglunnar í Reykjanesbæ, tveir vegna slagsmála en einn vegna ölvunar. Lögreglan var tvívegis kölluð að sama skemmtistaðnum vegna áfloga og handtók einn mann en honum var sleppt skömmu síðar.

Þá voru skemmdarverk unnin á bíl þar sem honum hafði verið lagt á bílastæði og tveir ökumenn voru stöðvaðir þar sem þeir uppfylltu ekki skilyrði laga til aksturs, annar var ölvaður en hinn hafði ekki enn fengið ökuleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×