Sport

Liverpool á eftir Joaquin

Liverpool er á eftir Joaquin, kantmanni Real Betis, ef marka má frétt hjá Sky fréttastofunni. Rafael Benitez er mikill aðdáandi leikmannsins og vonast til að geta sannfært hann um að hafna tilboðum frá bæði Real Madrid og Chelsea til að koma til Liverpool. Chelsea er búið að vera á höttunum eftir Joaquin í allan vetur og var talað um að Betis hefði hafnað tilboði félagsins í leikmanninn í janúar. Forseti Betis, Manuel Ruiz de Lopera, staðfesti í dag að Benitez væri á eftir leikmanninum og sagðist búast fastlega við tilboði í sumar. ,,Það er enskt félag, með frábæran spænskan stjóra sem er nýbúinn að stýra þeim í úrslit Meistaradeildarinnar og þekkir spænska markaðinn mjög vel, sem vill tryggja það að Joaquin fari ekki til Real Madrid eða Chelsea," sagið Lopera. ,,Það er ekki endalaust hægt að hafna tilboðum og við hjá Betis munum ekki segja leikmanninn ekki til sölu og selja hann síðan." Fyrir hjá Liverpool eru allnokkrir Spánverjar en talið er að Liverpool muni vera í erfiðleikum með að jafna peningatilboð Real Madrid og Chelsea ef þau á annað borð ætla sér leikmanninn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×