Sport

Makedóni semur við Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi hefur samið við 22 ára gamlan makedónskan leikstjórnanda að nafni Dimitar Karadjovski um að leika með liðinu næsta vetur. Karadjoski er í landsliðshóp Makedóníu og er sagður sterkur alhliða leikmaður sem á einnig að geta leikið sem skotbakvörður. Áður höfðu Borgnesingar fengið til liðs við sig þá Axel Kárason og Pétur Má Sigurðsson, svo þeir virðast vera komnir vel á veg með að manna lið sitt fyrir átökin á næsta tímabili.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×