Útlendingar veltu bílum 17. ágúst 2005 00:01
Lögreglan í Reykjavík lýsti í gær eftir manni sem ekkert hafði spurst síðan 10. ágúst en þá hafði hann ekið frá heimili sínu út á land, að því er talið var. Hann kom svo í leitirnar síðdegis og amaði ekkert að honum. TF-LÍF, stærri þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti í gærkvöld mann sem hafði veikst þar sem hann var á ferð um Kringilsárrana, norðan Vatnajökuls. Ekki var nánar vitað um líðan hans þegar blaðið fór í prentun. Um kvöldmatarleytið í gær varð ökumaður bifreiðar var við að reykur hafði gosið upp nærri eldsneytistanki hennar en maðurinn var á ferð um Hjalteyrargötu á Akureyri. Hann náði sér í slökkvitæki og slökkti eldinn áður en slökkvilið kom á vettvang. Bíll valt við Saxhól á Útnesvegi á Snæfellsnesi í gær. Erlendir ferðamenn óku bílnum svo ógætilega en þeir sluppu þó ómeiddir. Þá velti annar hópur útlendra ferðamanna bíl sínum í Ísafjarðardjúpi í gær, við veginn á Kollafjarðarheiði. Enginn slasaðist en bíllinn gjöreyðilagðist.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Innlent Egill Þór er látinn Innlent Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Erlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Sjá meira