Innlent

Skar sig á púls

Óskað var aðstoðar sjúkraliðs og lögreglu í húsi í Njarðvík vegna manns með slagæðablæðingu laust eftir klukkan hálf tólf á sunnudagskvöldið. Að sögn lögreglu hafði maður verið að opna kassa með hnífi, en slysast til að stinga honum í handlegginn á sér og skarst við það á púls. Maðurinn var í fyrstu fluttur á sjúkrahús í Keflavík og síðan á Landspítala í Fossvogi í Reykjavík. Aðfaranótt mánudags var að sögn lögreglu tíðindalítil, þó bárust næturvaktinni tvö ölvunarútköll og eitt vegna heimilisófriðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×