Innlent

Tveir slösuðust við Kárahnjúka

Tveir starfsmenn ítalska verktakarisans Impregilo slösuðust við vinnu sína við Kárahnjúkastíflu um kvöldmatarleytið í gær og sagði lögregla meiðsl beggja manna alvarleg. Tildrög slyssins eru ókunn en mennirnir voru ásamt fleirum að hífa stóran járnafleka sem gaf sig og féll á tvo þeirra. Voru báðir fluttir á sjúkrahús Akureyrar illa slasaðir en engar nánari upplýsingar um líðan þeirra var að fá áður en Fréttablaðið fór í prentun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×