Innlent

Hæstiréttur mildaði dómana

Hæstiréttur mildaði dómana yfir sakborningunum þremur í Landssímamálinu rétt í þessu. Árni Þór Vigfússon var dæmdur í 15 mánaða fangelsi og Kristján Ragnar Kristjánsson í 18 mánuði. Báðir voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir Héraðsdómi síðastliðið sumar.   Ragnar Orri Bendiktsson fékk sinn dóm mildaðan í þrjá mánuði úr átta.  Fjórði sakborningurinn, Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalféhirðir Landssímans, unir hins vegar dómi Héraðsdóms, sem hljóðaði upp á fjögurra og hálfs árs fangelsi, og afplánar hann nú refsingu sína á Litla Hrauni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×