Innlent

Ekið á hross á Norðurlandsvegi

Ekið var á hross um níuleytið í gærkvöldi í Húnavatnssýslum á Norðurlandsvegi við afleggjarann heim að Þingeyrarkirkju. Hrossið meiddist mikið en hvarf þó út í myrkrið. Það fannst nokkru síðar og þurfti að aflífa það.  Bíllinn skemmdist eitthvað við áreksturinn en engan mann sakaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×