Sport

Keflavík einum sigri frá titli

Keflavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna á miðvikudag. Keflavík vann Grindavík 89-87 í framlengdum leik í Grindavík í gær og hefur því unnið báða leikina í úrslitarimmunni. Alex Stewart skoraði 28 stig fyrir Keflavík og Birna Valgarðsdóttir og Anna María Sveinsdóttir 19 en Anna María tók auk þess 18 fráköst. Rita Williams var stigahæst í Grindavíkurliðinu, skoraði 34 stig og tók 13 fráköst. Erla Þorsteinsdóttir skoraði 19 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×