Sport

Tíu töp í ellefu leikjum Lakers

Los Angeles Lakers tapaði enn eina ferðina, með eins stigs mun fyrir San Antonio Spurs í gærkvöldi, 95-94. Lakers hefur tapað 10 af síðustu 11 leikjum sínum. Brent Barry skoraði sigurkörfuna 6 sekúndum fyrir leikslok. Kobe Bryant, sem aðeins skoraði 15 stig, gat tryggt Lakers sigurinn en skot hans í lokin geigaði. San Antonio Spurs hefur unnið 36 leiki á heimavelli og aðeins tapað þremur. Miami Heat vann New Orleans Hornets 111-99 þar sem Shaquille O´Neal skoraði 34 stig og Dwayne Wade 33. Orlando Magic vann nauman sigur á New Jersey Nets, 103-102. Steve Francis skoraði 33 stig fyrir Orlando en nýliðinn Nenad Kristic 28 fyrir New Jersey Nets. Chicago Bulls vann níunda leikinn í röð í gærkvöldi þegar liðið sigraði Charlotte Bobcats 112-97. Bulls heldur áfram á sigurbraut á meðan stigahæsti leikmaður liðsins, Eddy Curry, er á sjúkrahúsi. Denver Nuggets sigraði Porland Trailblazers 103-97. Denver hefur nú unnið 17 af síðustu 19 leikjum liðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×