Innlent

45 daga fangelsi fyrir líkamsárás

MYND/DV

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í 45 daga fangelsi fyrir tvöfalda líkamsárás. Og einnig til greiðslu þjáningar- og miskabóta til beggja þolenda. Líkamsárásin var framin á veitingastaðnum Klúbbnum í október í fyrra.

Málsatvik voru þau að hann réðst harkalega að stúlku á þrítugsaldri á salerni skemmtistaðarins og síðan á karlmann sem reyndi að koma henni tl aðstoðar. Bæði fórnarlömbin kröfðust bóta og var honum gert að greiða konunni tæplega hundrað og fjörutíu þúsund og karlinum hundrað og áttatíu þúsund. Auk þess var honum gert að greiða málsvarnarlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×