Innlent

Kæra Reynis tekin fyrir

Jón Trausti Lúthersson hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á Reyni Traustason, fyrrverandi fréttastjóra DV, á skrifstofu blaðsins í október síðastliðnum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Jón Trausti er ákærður fyrir að hafa ráðist á fréttastjórann, tekið hann kverkataki og hert að með þeim afleiðingum að honum sortnaði fyrir augum, marðist og hruflaðist á hálsi. Krefst ákæruvaldið refsingar yfir manninum fyrir árásina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×