Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods sigraði á Opna breska meistaramótinu í golfi sem var að ljúka á St.Andrews vellinum í Skotlandi. Þetta er annar risatitillinn sem Tiger vinnur í ár því fyrr á árinu vann hann bandaríska Masters mótið. Kylfingnum hafði einu sinni áður tekist að sigra á Opna breska en það árið 2000 en þá var einnig leikið á St.Andrews. LokastaðanT Woods BNA -14 C Montgomerie Sko -9 F Couples BNA -8 J Olazabal Spá -8 G Ogilvy Ástr. -7 B Langer Þýs -7 V Singh Fij -7 M Campbell N.Sjá -7 S Garcia Spá -7 R Goosen SA -7 G McDowell N-Írl -6