Herbert kátur með sigur KR 10. mars 2005 00:01
Herbert Arnarson þjálfari KR-inga í körfuknattleik karla var yfir sig ánægður með sigur sinna manna á Snæfelli í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni í gærkvöldi. Í samtali við Fréttablaðið sagði Herbert að sigurinn í Stykkishólmi hafi verið mjög sætur. "Jú, þetta var rosalegur leikur og gott að ná að sigra í fyrsta leik á útivelli. Það hefur þó að mínu mati enga úrslitaþýðingu í þessu einvígi að vera með heimavallarréttinn, því leikir þessara liða eru alltaf æsispennandi og úrslitin ráðast á síðustu sekúndunum eins og leikur okkar við þá í deildinni um daginn. Við töpuðum honum á heimavelli í þrefaldri framlengingu svo að það var ljúft að ná að vinna þennan í Stykkishólmi. Þessir leikir verða allir svona spennandi á milli þessara liða", sagði Herbert. Við spurðum Herbert út í hetjuskapinn hjá Aaron Harper á lokasekúndunum, en hann kom KR einu stigi yfir þegar um sjö sekúndur voru eftir af leiknum, með ótrúlegri þriggja stiga körfu, en Bandaríkjamaðurinn átti stórleik í liði KR og skoraði 36 stig, gaf 9 stoðsendingar og hitti frábærlega utan af velli. "Jú, Harper var góður. Við erum með frábæra útlendinga og þetta er það sem við borgum þeim fyrir að gera - svo einfalt er það", sagði Herbert.
Körfubolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Stefán fær Arsenal í heimsókn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Sjá meira