Sport

Spurs íhuga nýtt tilboð í Johnson

NordicPhotos/GettyImages
Áhugi Tottenham Hotspur á enska landsliðsmanninum Andy Johnson hefur nú vaknað að nýju, eftir að kappinn gaf það út opinberlega að hann vildi komast frá liði sínu Crystal Palace og í úrvalsdeildina, til að eiga betra tækifæri á að verða í enska hópnum fyrir HM í Þýskalandi á næsta ári. Forráðamenn Palace eru að vísu ekki á því að láta hann fara, en mörg lið eru á höttunum eftir Johnson, sem var spútnikframherji síðasta árs í ensku úrvalsdeildinni, en Tottenham er talið vera liða ákafast í að fá hann og þá yrði hann annar Palace-leikmaðurinn til að fara til þeirra á nokkrum dögum. Einnig er vitað af áhuga West Brom og Birmingham á Johnson, en auk þess hafa lið á Spáni verið að spyrjast fyrir um hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×