Sport

Newcastle býður í Wright-Phillips

Newcastle hafa boðið í enska landsliðsmanninn Shaun Wright-Phillips. Boðið hljóðar upp á sex milljónir punda, ásamt Craig Bellamy landsliðsmanni Wales og Frakkanum Laurent Robert, sem báðir vilja komast burt frá félaginu. Craig Bellamy fór á láni til Celtic í vetur eftir að hafa lent upp á kant við Graeme Souness, knattspyrnustjóra Newcastle. Laurent Robert hefur heldur ekki verið í náðinni hjá stjóranum skapbráða. Chelsea eru einnig sagðir hafa áhuga á Wright-Phillips og fylgjast grannt með gangi mála.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×