Sport

Rooney og spúsa hrella 6 ára gutta

"Ég skal plokka úr þér helv**** augun" fékk lítill 6 ára gutti að heyra frá kærustu enska knattspyrnulandsliðsmannsins Wayne Rooney á dögunum. Coleen McLoughlin var að ganga inn á skyndibitastað fyrir skömmu þegar 6 ára drengur smellti mynd af henni úr myndavélasíma bróður síns. Hún brást hin versta við og lét fyrrgreind orð falla til feðganna en með drengnum í för var faðir hans og bræður, 5 og 11 ára. Vitni segja drenginn hafa orðið dauðskelkaðan og ekki batnaði ástandið þegar Wayne sjálfur steig út úr bifreið sinni og hrækti á bílrúðuna þar sem bræðurnir sátu inni í bíl föður síns. Að sögn vitna sem lýsa atburðinum í Sunday Mirror í dag mun Wayne hafa hrópað ókvæðisorðum í átt að 6 ára guttanum.  "Ég skal ná þér helvítið þitt" Að svo búnu gengu skötuhjúin skapbráðu inn í bíl sinn og óku á brott. Það er nokkuð ljóst að Rooney og spúsa hans eiga í talsverðum vandræðum með að höndla frægðina en þetta er ekki í fyrsta og væntanlega ekki það síðasta sem þau komast í blöðin fyrir dólgslega hegðun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×