Lífið

Nanna Kristín féll út úr Idol

Nanna Kristín Jóhannsdóttir varð fyrst til að falla út úr úrslitakeppni Idol stjörnuleitarinnar í kvöld. Fyrsti þáttur úrslitanna var í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Vetrargarðinum í Smáralind í kvöld og sungu tíu þátttakendur lög að eigin vali. Nanna Kristín söng Solitaire en frammistaða hennar dugði ekki tíl áframhaldandi keppni Það voru sjónvarpsáhorfendur sem greiddu atkvæði um keppendur með því að hringja inn eða senda SMS. Annar þáttur úrslitanna verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Smáralind næstkomandi föstudag, 21. janúar klukkan 20:30. Þá fellur eitt þeirra níu sem eftir eru, úr keppni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.