Viðskipti innlent

Hagnaður TM undir væntingum

Í greinargerð frá KB banka kemur fram að hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar á öðrum ársfjórðungi nam 1.449 m.kr. og var því nokkuð undir væntingum Greiningardeildar um tveggja milljarða kr. hagnað. Engu að síður er þetta umtalsverð aukning frá sama tíma á síðasta ári þegar hagnaðurinn var 236 milljónir. Hreinar tekjur félagsins aukast um 43% milli ára og námu 2.423 m.kr. á fjórðungnum. Munar þar mestu um mikla aukningu í fjárfestingartekjum og hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×