Sport

Jón Arnór átti góðan leik

Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, skoraði 10 stig í leik Evrópuúrvalsins gegn heimsliðinu í Stjörnuleik FIBA á Kýpur í dag. Jón Arnór var í byrjunarliðinu hjá Evrópuúrvalinu og stóð sig vel. Þess má geta að í dag birtist viðtal við Jón Arnór á vef KR þar sem fram kemur að nokkur NBA lið hafa verið að sýna Jóni Arnóri áhuga að undanförnu og eiga í viðræðum við umboðsmann hans, en samningur Jóns Arnórs við rússneska liðið Dynamo St. Petersburg rennur út í vor.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×