Viðskipti innlent

Persónugerð debetkort

Félögum í XY-klúbbi Íslandsbanka, sem eru á aldrinum 12 til 15 ára, stendur til boða að fá persónugerð debetkort hjá Íslandsbanka. Í því felst að þeir geta hannað kortin sjálfir með myndum úr eigin safni eða úr myndabanka. Til stendur að bjóða öðrum viðskiptavinum bankans upp á þennan möguleika fljótlega. Landbankinn býður einnig uppá persónugerð greiðslukort sem ganga undir heitinu Mitt kort og eru afrakstur þróunarvinnu sem átt hefur sér stað innan bankans á undanförnum mánuðum, en hugbúnaðarlausnin og kerfið er alfarið unnið af tæknifólki Landsbankans í samvinnu við Reiknistofu bankanna og VISA Ísland.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×