Sport

Hverjir mæta Fjölni í úrslitunum?

Í kvöld fer fram síðari leikur undanúrslita bikarkeppni karla í körfubolta hér heima en þá tekur Breiðablik á móti Njarðvík og hefst leikurinn kl. 19.15. Fjölnismenn tryggðu sér farseðilinn í úralitaleikinn í gær þegar liðið sló út Hamar/Selfoss á útivelli, 100-110. Úrslitaleikurinn fer fram í Laugardalshöll 13. febrúar n.k. Einn leikur átti að fara fram í undanúrslitum kvenna í dag en honum hefur verið frestað vegna veikinda leikmanna. Leikur Hauka og Keflavíkur átti að fara fram kl. 17.00 á Ásvöllum. Ekki hefur verið ákveðið hvenær leikurinn fer fram, en ákvörðun um það verður tekin eftir helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×