Hafði mikil áhrif á ákvörðun mína 23. janúar 2005 00:01
Dynamo St. Petersburg, lið Jóns Arnórs Stefánssonar í rússnesku úrvalsdeildinni í körfuknattleik, tryggði sér efsta sætið í Evrópudeildinni á dögunum og er taplaust það sem af er. Það hefur hins vegar valdið áhangendum liðsins áhyggjum að Dynamo hefur tapað tveimur leikjum í röð í rússnesku deildinni og er í 6. sæti deildarinnar um þessar mundir með 8 sigra og 6 tapleiki. Menn hafa velt þeirri spurningu upp hvort David Blatt sé starfi sínu vaxinn sem þjálfari liðsins en sá er hokinn af reynslu og hafði mikil áhrif á að Jón gekk til liðs við Dynamo í haust. "Við getum ekki kennt leikmönnum okkar um þetta slaka gengi heldur ber Blatt alla ábyrgð á frammistöðu liðsins. Varðandi þann möguleika að láta hann fara þá er það eitthvað sem hefur ekki ratað upp á borð til okkar að svo stöddu," sagði Vladimir Rodionov, framkvæmdastjóri Dynamo-liðsins. David Blatt, sem var áður hjá Maccabi Tel-Aviv, var ráðinn landsliðsþjálfari Ísraels um helgina og verður fyrsta verkefni hans að reyna að koma liðinu í úrslit í Evrópukeppni Landsliða. Blatt vann á sínum tíma tvo Evróputitla sem aðstoðarþjálfari Tel-Aviv. Hann hefur nú þegar stýrt Dynamo St. Petersburg til 11 sigra í Evrópukeppninni og segja körfuboltaspekingar að allar vangaveltur um að hann verði látinn taka poka sinn úr lausu lofti gripnar. Blatt vildi sjálfur meina að niðursveifla sem þessi væri viðbúin á þessum tíma árs. "Á árum mínum með Maccabi Tel-Aviv þá vissum við alltaf að janúar yrði slæmur fyrir okkur. Dynamo-liðinu til varnar má nefna að við ferðuðumst mjög mikið í nóvember og desember. Við náðum að vinna leiki þá en þetta kom niður á okkur núna," sagði Blatt. "Ég er þeirrar skoðunar að við erum á góðri leið með takmark okkar en til þess þarf mikla vinnu. Við viljum gera Dynamo að stórveldi," sagði Blatt ákveðinn. Jón Arnór, sem var hjá Dallas Mavericks í NBA-körfuboltanum á síðasta tímabili en söðlaði um og hélt til Rússlands í haust, hefur miklar mætur á Blatt og hefur lengi fylgst með kappanum. "Árangur hans með Maccabi Tel-Aviv er aðdáunarverður og ráðning hans til Dynamo St. Petersburg vóg þungt í ákvörðun minni í að ganga til liðs við Dynamo," sagði Jón Arnór í samtali við Fréttablaðið. Jón hefur leikið vel með Dynamo og þá sérstaklega í Evrópukeppninni. Þar hefur hann skilað liði sínu 14 stigum, 3,1 frákasti og 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Næsti leikur Dynamo St. Petersburg er á heimavelli í Evrópukeppninni gegn AEL Lemesos frá Kýpur.
Körfubolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Stefán fær Arsenal í heimsókn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Sjá meira