Innlent

Bubbi krefur Hér og nú um 20 milljónir

Bubbi Morthens ætlar að krefja útgefanda og ritstjóra tímaritsins Hér og nú um tuttugu milljónir króna í skaðabætur vegna umfjöllunar og myndbirtinga blaðsins um hann. Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögfræðingur Bubba, lagði fram stefnu í dag, þar sem segir að upphæðin hafi verið ákveðin með tilliti til fjárhagslegs bolmagns móðurfyrirtækis Hér og nú. Það hafi takmarkaða þýðingu að krefja fjölmiðil með svo sterka bakhjarla um litlar upphæðir og því sé upphæðin hærri en þekkst hefur í slíkum málum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×